Ungstirnin sigruðu í nístingskulda

Það voru þau Natalía Erla Cassata og Agnar Örn Sigurðarson sem stóðu uppi sem sigurvegarar í RIG brekkusprettum, hjólakeppni Reykjavík international games íþróttahátíðarinnar sem nú stendur yfir í Reykjavík. Keppnin fór fram á Skólavörðustíg í kvöld þar sem fjölmenni fylgdist með hjólreiðafólkinu spretta úr spori í nístingskulda.

Natalía er aðeins 15 ára gömul, en hún var í þriðja sæti í keppninni í fyrra. Hún sigraði Bríeti Kristnýju Gunnarsdóttur í úrslitarimmunni, en Bríet lenti í vandræðum í byrjuninni. Hrönn Ólína Jörundsdóttir, sem hefur síðustu tvör ár verið í örðu sæti, endaði í þriðja sæti í þetta skiptið eftir að hafa tapað fyrir Natalíu í undanúrslitum.

Agnar er einnig ungur að árum, eða 18 ára og varði hann titilinn frá í fyrra, en þá hafði sigrað nokkuð óvænt. Agnar sigraði Óskar Ómarsson rétt svo með sjónarmun í úrslitarimmunni í karlaflokki. Rétt fyrir markið var Agnar með smá forskot en Óskar sótti á á síðustu metrunum, en allir þrír dómararnir voru sammála um að Óskar hefði verið sjónarmun á undan.

(f.v) Óskar Ómarsson (2. sæti), Agn­ar Örn Sig­urðar­son (1. sæti) og Kristinn Jónsson (3. sæti).

Í fyrsta sinn á Íslandi var einnig keppt í lengsta sprett­in­um á Skóla­vörðustígn­um í kvöld. Keppn­is­rétt í þeirri grein öðluðust þeir sem ekki komust í undanúr­slit. All­ir kepp­end­ur voru ræst­ir sam­tím­is og þurftu að halda jafn­vægi án þess að stíga niður fæti eða styðja sig við inn­an fyrri og síðari rá­slínu þar til hljóðmerki var gefið. Þegar dóm­ari gaf hljóðmerki án fyr­ir­vara á 4. eða 5. mín­útu eft­ir ræs­ingu mátti hjóla í mark. Sig­ur­veg­ari í þess­ari óvenju­legu keppni í anda „the longest lap“ sem er keppn­is­form úr track hjól­reiðum var Kristó­fer Gunn­laugs­son.

Eins og fyrr segir var ískalt á Skólavörðustígnum í kvöld, en keppnin fór fram á neðsta hluta stígsins og var búið að girða af braut sem var um 120 metra löng. Þá höfðu tjöld verið sett upp þar sem keppendur héldu sig milli umferða og reyndu að halda á sér hita, enda ekki auðvelt að taka 10-20 sekúndna spretti þar sem allt er gefið í botn ef líkaminn kólnar of mikið á undan.

Úrslit í kvennaflokki.
Úrslit í karlaflokki.

Previous Article
Next Article

Leave a Reply

Hjólafréttir

Markmið hjólafrétta er að auka veg og vanda hjólreiða sem sports og samgöngumáta. Við vonum að þú lesandi góður hafir gagn og gaman af lestrinum. Um vefinn.

Samstarfsaðilar