Um vefinn
Það er vilji þeirra sem standa á bak við hjolafrettir.is að hann verði til þess að hífa hjólasportið og hjólreiðar almennt hærra upp og vekja enn meiri athygli á því sem er í gangi í þessum geira. Hvort sem um er að ræða fréttir af mótum, skipulagsmál sem snerta hjólreiðafólk eða nördapælingar um reiðhjól þá er stefnan að fjalla um efnið. Þá verði vefurinn einnig vettvangur fyrir áhugaverðar aðsendar greinar sem tengjast hjólreiðum.
Á bak við hjolafrettir.is standa Ólafur Örn Nielsen, Róbert Farestveit og Þorsteinn Ásgrímsson og eru þeir allir í ritstjórn vefsins. Ritstjóri er Þorsteinn
Hægt er að hafa samband við ritstjórn með tölvupósti á hjolafrettir@hjolafrettir.is.
Sjáumst úti að hjóla!