Fjórði þáttur – staða masters-flokkanna

Er rétt að breyta fyrirkomulagi keppnisflokka hér á landi?

Fjórði þátturinn af hlaðvarpi Hjólafrétta er kominn í loftið fyrir alla til að njóta yfir páskahátíðina. Í þessum þætti ræðum við núverandi keppnisflokkafyrirkomulag og veltum fyrir okkur stöðu masters-flokka og hvort þeir haldi jafnvel aftur af þróun hér á landi. 

Þá er farið yfir ráðningu nýs afreksstjóra HRÍ og hvernig landsliðið geti virkað sem gulrót á stærri hóp en hefur verið.

Við förum líka yfir erlendar keppnir og hvort yfirfæra megi árangur Quicksteps á íslenska keppnislandslagið. Við rennum einnig yfir það hvað sé framundan á erlendum vettvangi. Gleðilega páska.

Previous Article
Next Article

Hjólafréttir

Markmið hjólafrétta er að auka veg og vanda hjólreiða sem sports og samgöngumáta. Við vonum að þú lesandi góður hafir gagn og gaman af lestrinum. Um vefinn.

Samstarfsaðilar