Gullhringnum frestað til 25. ágúst

 

KIA Gullhringnum hefur verið frestað fram í lok ágúst, en ástæða þess eru framkvæmdir á Laugavatnsvegi sem Vegagerðin hefur unnið að síðustu daga að malbika. Fresta hefur þurft framkvæmdunum fyrr í sumar og vor vegna vætuveðurs. Í tilkynningu frá keppnishöldurum kemur fram að þetta sé gert með öryggi keppenda í huga.

Tilkynningin í heild:

„Kia Gullhringnum frestað til 25. ágúst

Frá því sl. haust hafa mótshaldarar KIA Gullhringnsins unnið sleitulaust við það að efla öryggi í kringum keppnina. Þetta hefur verið unnið af fagfólki með þekkingu á vegaöryggi í nánu samráði við Vegerðina sem hefur sýnt mikinn samsstarfsvilja.

Sífellt vatnsveður í vor og allt sumar hefur valdið verktökum Vegagerðarinnar miklum vanda og hefur ekki tekist að ljúka viðgerðum á vegum í tæka tíð. Á síðustu 7 dögum hefur malbikun mikilvægra kafla verið frestað tvívegis. Þá hefur ekki tekist að klára framkvæmdir á Laugavatnsvegi en þar eru malarkaflar og einnig er ókláraður kafi við Borg í Grímsnesi.

Við þessar aðstæður telja mótshaldarar að öryggi þátttakenda og annarra vegfarenda sé ógnað og telja óverjandi að senda stóra hóp hjólreiðfólks af stað við þessar aðstæður.

Af þessum sökum hefur mótinu verið frestað til laugardagsins 25. ágúst nk.
Er þetta gert af öryggisástæðum og þykir keppnisstjórn miður að þurfa að gera þessa breytingu með svo stuttum fyrirvara en öryggi keppenda og annarra vegfarenda er ofar öllu. Afhendingu keppnisgagna er því frestað þar til í vikunni fyrir keppni. Allar nánari upplýsingar má finna á Facebook síðu keppninnar.“

Previous Article
Next Article

Leave a Reply

Hjólafréttir

Markmið hjólafrétta er að auka veg og vanda hjólreiða sem sports og samgöngumáta. Við vonum að þú lesandi góður hafir gagn og gaman af lestrinum. Um vefinn.

Samstarfsaðilar