Sögulegur sigur í Tour de France eftir ótrúlegan gærdag

Tadej Pogacar stóð uppi sem sigurvegari Frakklandshjólreiðanna í dag eftir þriggja vikna keppni.

Frakklandshjólreiðunum, Tour de France, stærstu götuhjólakeppni heims, lauk í dag eftir 21 keppnisdag og tvo hvíldardaga þegar keppendurnir hjóluðu Ódáinsvelli (Champs-Élysées breiðstrætið) fram og aftur á lokadeginum, líkt og hefð er fyrir.

Fyrir næst síðasta daginn höfðu flestir bókað að Slóveninn Primož Roglic tæki sigurinn í ár eftir að hafa verið mjög sannfærandi alla keppnina, en landi hans, hinn 21 árs gamli Tadej Pogacar, átti líklega einhverja mögnuðustu frammistöðu á hjólabrautinni í manna minnum og tók sigurinn í gær, á næst síðustu dagleiðinni. Vann hann þar með heildarkeppnina (gula treyjan) í ár og í dag hjólaði Pogacar fagnandi ásamt liðsfélögum sínum um stræti Parísar.

Roglic hjólar fyrir liðið Team Jumbo Visma, sem var talið sem annað af tveimur líklegustu liðunum til að vinna keppnina í ár. Sýndi liðið nokkra yfirburði flesta daga keppninnar og virtist lítið ætla að koma í veg fyrir sigur Roglic eftir að hann stakk helstu mótherja í heildarkeppninni af á tólftu dagleið.

Roglic og Pogocar koma í endamarkið á 15. dagleið.

Pogacar, sem hjólar fyrir liðið UAE-Team Emirates, gafst hins vegar ekki upp og meðan aðrir líklegir mótherjar þeirra Roglic duttu út sem mögulegir sigurvegarar hver af öðrum fylgdi Pogacar Roglic eftir hverja dagleiðina á fætur annarri þangað til komið var að næst síðustu dagleiðinni. Það var hins vegar ekki venjuleg götuhjóladagleið heldur svokölluð tímataka, en þá ræsir bara einn í einu og er tími tekinn á ákveðinni vegalengd fyrir hvern og einn í stað þess að hjólað sé saman í hóp.

Roglic hefur hingað til þótt sterkur í þeirri grein og var þegar þarna var komið til sögu með 57 sekúnda forystu á Pogacar og töldu flestir að það ætti að duga honum og gott betur en það. Var það skoðun flestra, jafnvel þó Pogacar hefði fyrr í sumar einmitt unnið Slóveníumeistaramótið í tímatöku þar sem hann keppti einmitt á móti Roglic. Forysta Roglic fyrir þessa dagleið þótti hins vegar það mikil að honum ætti ekki að geta verið ógnað, jafnvel þótt Pogacar tæki af honum nokkrar sekúndur.

Roglic samfagnar með Pogacar á síðustu dagleiðinni í dag.

Tímatökubrautin var nokkuð flöt fyrstu 30 kílómetrana, en svo tók við tæplega 7 kílómetra brekka með nokkrum mjög bröttum köflum. Brugðu meðal annars margir á það ráð að fara af sérsmíðuðum tímatökuhjólum og yfir á hefðbundin götuhjól rétt eftir að brekkan hófst til að vera á léttari hjólum í staðinn fyrir kosti tímatökuhjóla til að vinna á loftmótstöðu, sem er mjög stór þáttur í hjólreiðum, ekki síst í tímatöku.

Strax í byrjun var ljóst að Pogacar ætlaði sér að gefa allt í þessa tímatöku. Roglic var ræstur tveimur mínútum á eftir honum, en í útsendingunni var gefinn upp rauntími á þeim báðum þar sem hægt var að fylgjast með hversu mikið þeir voru á undan eða eftir hvor öðrum. Fór Pogacar hægt og rólega, en þó öruggt, að minnka forskot Roglic og þegar kom að brekkunni var forskotið orðið að litlu sem engu. Töldu margir að þetta væri planið hjá Roglic og að hann hefði verið að spara sig fyrir brekkuna.

Pogacar gaf allt í sölurnar í tímatökunni á 20. dagleið og uppskar ríkulega.

Svo reyndist hins vegar ekki og Pogacar hélt áfram að á ofur hraða upp brekkuna líkt og hann hafði verið á sléttunni á undan. Síðustu sekúndurnar sem Roglic hafði í forskot gufuðu upp og Pogacar fór að byggja upp eigið forskot.

Að lokum stóð hann uppi með 59 sekúnda forskot. Honum hafði sem sagt tekist að vera 1 mínútu og 56 sekúndum á undan Roglic og 1 mínútu og 21 sekúndu á undan næsta manni. Það verður því ekki sagt að Roglic hafi endilega átt mjög slæman dag í gær, heldur átti Pogacar líklega besta keppnisdag ævinnar.

Svekkelsið leyndi sér ekki hjá Roglic eftir að ljóst varð að Pogocar hafði skákað honum.

Síðasti keppnisdagur Frakklandshjólreiðanna voru svo í dag um Ódáinsvelli í París. Leiðin er mjög flöt og er keppnin helst á milli þeirra sem flokkast sem spretthjólreiðamenn, en slíkir hjólreiðamenn eru ólíklegir til að vinna heildarkeppnina, þó þeir keppi sín á milli um sigur á flötum dagleiðum. Hefð er fyrir því að sá keppandi í heildarkeppninni sem sé efstur fyrir lokadaginn fái að fagna sigrinum í París og er almennt ekki gerð atlaga að forystu hans. Það átti við í dag og gat Pogacar fagnað vel ásamt liðsfélögum sínum í UAE-Team Emirates.

Hvað er meira franskt en að hjóla eftir Ódáinsstræti í Tour de France?
Mögulega að hjóla um torgið við Louvre safnið.

Með sigrinum varð Pogacar fyrstur í tæplega 40 ár til þess að vinna Frakklandshjólreiðarnar í sinni fyrstu tilraun. Hann er þó ekki alveg óvanur stórum mótum, því í fyrra varð hann annar í Spánarhjólreiðunum (Vuelta a España), en það er einnig þriggja vikna keppni líkt og Frakklandshjólreiðarnar.

Roglic, Pogacar og Riche Porte voru í efstu sætum heildarkeppninnar.

Í stórkeppnum sem þessum er ekki aðeins keppt í heildarkeppninni, því það að vinna dagleið í Frakklandshjólreiðunum er afrek út af fyrir sig. Þá eru þrjár aðrar keppnir innan Frakklandshjólreiðanna; sprettkeppni (græna treyjan), klifurkeppni (doppótta treyjan) og besti ungi hjólreiðamaðurinn (hvíta treyjan). Pogacar tókst að vinna þrjár dagleiðir í ár og endaði hann með að taka líka doppóttu og hvítu treyjurnar. Er það í fyrsta skipti síðan 1969 sem einhverjum tekst slíkt afrek.

Þess má til gamans geta að Pogacar á afmæli á morgun og getur því heldur betur haldið upp á 22 ára afmælisdaginn.

Í sprettkeppninni var einnig talsverð spenna lengst af í keppninni, en þar náði Írinn Sam Bennett að landa heildarsigri og innsiglaði hann það með að vinna síðustu dagleiðina í dag í París. Hafði hann att kappi við Slóvakann Peter Sagan lengst af, en Sagan hefur unnið grænu treyjuna samtals sjö sinnum, oftar en nokkur annar. Bennett var þó sterkastur þegar uppi var staðið og fer heim með tvo sigra á dagleiðum og grænu treyjuna.

Sam Bennett sigraði sprettkeppnina.
Previous Article
Next Article

Hjólafréttir

Markmið hjólafrétta er að auka veg og vanda hjólreiða sem sports og samgöngumáta. Við vonum að þú lesandi góður hafir gagn og gaman af lestrinum. Um vefinn.

Samstarfsaðilar